
Framkvæmdir og ráðgjöf

Um Alverk
Alverk var stofnað árið 2007 af Aðalgeir Hólmsteinssyni en er í dag í eigu 6 starfsmanna; Aðalgeirs, Arnars Sveinssonar, Gísla Arnar Bjarnhéðinssonar, Kristins Jónssonar, Óskars Guðmundssonar og Þorleifs Kristins Árnasonar.
Félagið hefur frá upphafi sinnt framkvæmda og ráðgjafarverkefnum í mannvirkjagerð. Verkefnin hafa verið bæði stór og smá, fyrir einkaaðila, félagasamtök, sveitafélög og ríki. Alverk hefur yfirumsjón með verkefnum á framkvæmdastigi, sem stjórnunar, al- eða aðalverktaki og sinnir jafnframt byggingastjórn. Fyrirtækið veitir einnig ráðgjöf við undirbúning framkvæmda, virðisgreiningu og hönnun
Félagið hefur mikið unnið í alverktöku, svokölluðum „turn-key“ verkefnum.
Gæðastefna
Alverk vinnur eftir ákveðinni stefnu við hönnun, efnisval og framleiðslu nýbygginga/íbúðahúsnæðis og annarra mannvirkja. Markmiðið er að tengja hönnun, efnisval og uppbyggingu markvisst við ákveðna framtíðarsýn og gildi þar sem hagkvæmni, vistvæni, gæði og samfélagsleg ábyrgð fara saman. Ef þessum markmiðum er náð mætti segja að sjálfbærni byggingamannvirkis aukist til muna á líftíma þess. Stefna Alverks eru ætluð sem leiðbeinandi mælikvarði fyrir ólíka hönnuði, verktaka og iðnaðarmenn við mótun bygginga og lóða.