Alverk
Fréttir

Hvað er að frétta?

Hér er tekið saman ýmislegt sem er á döfinni og sem við erum stolt af úr okkar daglega starfi.

Byggingafélag námsmanna og Alverk semja um byggingu 70 nýrra námsmannaíbúða24/02/2025

Byggingafélag námsmanna og Alverk semja um byggingu 70 nýrra námsmannaíbúða

Byggingafélag námsmanna og Alverk ehf. hafa samið um byggingu 70 nýrra námsmannaíbúða ásamt byggingu leikskóla við Arnarbakka í Breiðholti. Framkvæmdir eru að hefjast við niðurrif eldri verslunarhúsa sem eiga að víkja, en í stað þeirra koma tvær byggingar með leikskóla og 70 einstaklings og fjölskylduíbúðum á efri hæðum.

Meira
JÓHANN G. JÓHANNSSON, FORSVARSMAÐUR EYJÓLFS OG AÐALGEIR HÓLMSTEINSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI ALVERKS, UNDIRRITA SAMNINGA.10/05/2021

Stækkun hátækniseturs Alvotech í Vatsmýrinni

Fasteignafélagið Eyjólfur, sem er í eigu fjárfestingafélagsins Aztiq, og Alverk hafa undirritað samning um uppsteypu og frágang utanhúss vegna stækkunar hátækniseturs í Vatnsmýri. Hátæknisetrið verður hrein viðbót við húsakynni Alvotech en Eyjólfur hefur gert langtíma leigusamning við Alvotech um notkun hússins.

Meira
MYND AF SIGÞRÚÐI GUÐMUNDSDÓTTUR FRAMKVÆMDASTÝRU KVENNAATHVARFSINS OG AÐALGEIR HÓLMSTEINSSYNI FRAMKVÆMDASTJÓRA ALVERKS EHF. VIÐ UNDIRRITUN MEÐ COVID VARNIR.01/12/2020

Alverk byggir fyrir kvennaathvarfið

Alverk og Samtök um kvennaathvarf hafa gengið frá samstarfssamningi varðandi undirbúning og hönnun á byggingu neyðarathvarfs fyrir konur og börn.

Meira
Svefnskáli á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar03/11/2020

Svefnskáli á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar

Alverk hefur nú samið við Landhelgisgæslu Íslands, í umboði Framkvæmdasýslu Ríkisins, um byggingu svefnskála á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Til stendur að byggja um 300 gistirými á svæðinu, fram til ársins 2024.

Meira
Fyrirmyndarfyrirtæki15/10/2020

Fyrirmyndarfyrirtæki

Það er ánægjulegt og okkur mikill heiður að vera á þessum óháða lista Viðskiptablaðsins og Keldunar yfir fyrirmyndar fyrirtæki á Íslandi. Alverk hafnar hér í sjöunda sæti yfir rekstrarhæfi á landsvísu, í hópi millistórra fyrirtækja. Við þökkum framúrskarandi starfsfólki og viðskiptavinum.

Meira
Byggt fyrir Búseta við Keilugranda19/09/2020

Byggt fyrir Búseta við Keilugranda

Framkvæmdum við Keilugranda 1-11 í Reykjavík lauk í september sl. og hafa 78 íbúðir verið afhentar nýjum íbúum. Framkvæmdir hófust í byrjun árs 2018. Framkvæmdin gekk í heild sinni vel og var á áætlun hvað varðar tíma, verkgæði og kostnað. Verkkaupi er Búseti hsf.

Meira
BÖÐVAR JÓNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI BN OG AÐALGEIR HÓLMSTEINSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI ALVERKS.27/12/2019

Íbúðir fyrir námsmenn við Stakkahlíð í Reykjavík

Alverk hefur nú samið við Landhelgisgæslu Íslands, í umboði Framkvæmdasýslu Ríkisins, um byggingu svefnskála á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Til stendur að byggja um 300 gistirými á svæðinu, fram til ársins 2024.

Meira